Sóley segir hagsmuni borgarbúa ekki hafða að leiðarljósi
Fulltrúi Vinstri grænna lagði fram tillögu í stjórn Orkuveitunnar í dag um að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um þær viljayfirlýsingar og raforkusölusamninga sem fyrirliggjandi eru með það að markmiði að auka tekjur fyrirtækisins. Tillögunni var frestað til næsta fundar.
Tillaga forstjóra um gjaldskrárhækkanir og hagræðingaraðgerðir eru þarfar og góðra gjalda verðar en hefðu þurft talsverða pólítíska rýningu af hálfu stjórnar fyrir fundinn. Þær aðgerðir sem þarna voru samþykktar koma við hvert einasta heimili í borginni og stóran hluta starfsfólks og því með öllu óboðlegt að ekki skuli liggja fyrir pólitísk útfærsla á aðgerðunum heldur séu hráar prósentutölur afgreiddar með bókhaldið eitt í forgrunni.
Engin lína hefur verið lögð um það hvernig hagræðingin skuli nást, hvort segja þurfi upp fólki, lækka þurfi laun eða annan rekstrarkostnað, hvort fara eigi blandaða leið eða hvernig sú leið komi þá til með að líta út. Að sama skapi liggur ekkert fyrir um hvort þjónusta fyrirtækisins verði skert eða hvernig.
Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sitja kjörnir fulltrúar sem hafa ríkari skyldum að gegna en stjórnarmenn í fyrirtækjum á almennum markaði. Við ákvarðanir sem þessar verður að liggja fyrir stefnumörkun þar sem reynt er að tryggja hagsmuni borgarbúa og opinberra starfsmanna. Sú var ekki raunin, heldur varpaði stjórnin ábyrgðinni á þessu stórpólitíska verkefni að miklu leyti yfir á stjórnendur fyrirtækisins. Það er miður.

