Fréttir

Nýr formaður UVGh

27.8.2010

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu héldu aðalfund sinn að kvöldi þess 26. ágúst. Á fundinum var nýr formaður kosinn en það var Claudia Overesch sem tók við embætti af Snærós Sindradóttur. Aðrir í stjórn eru; Eva Hrund Hlynsdóttir, Gísli Garðarsson, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Hlöðver Sigurðsson, Helgi Hrafn Ólafsson og Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir.


Á aðalfundinum voru þrjár ályktanir samþykktar og hljóða svo;

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu haldinn þann 26. ágúst 2010 í Reykjavík ítrekar fyrri ályktun stjórnar UVG-h um sértækan vanda útigangskvenna og telur brýnt að borgaryfirvöld tryggi þeim mannsæmandi húsnæði allan ársins hring sem þær geta kallað heimili sitt. Þess má geta að á meðan konum hefur ekki verið boðið viðunandi langtímaathvarf er búið að sjá heimilislausum körlum fyrir fleiru en einu slíku. Vændi er oft síðasta úrræði margra heimilislausra kvenna til að eiga húsaskjól þegar kólna tekur. Það er kominn tími til að nýr meirihluti átti sig á þeim gríðarlega vanda sem fjöldi kvenna stendur frammi fyrir.

Aðalfundur UVGh leggur höfuðáherslu á að aðgerðaráætlun um útigangsfólk verði fylgt eftir með róttækum breytingum á aðbúnaði þeirra. Fundurinn skorar því á nýjan meirihluta í borginni að standa við stóru orðin og opna heimili fyrir útigangskonur áður en vetur gengur í garð.

****

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu haldinn þann 26. ágúst 2010 í Reykjavík telur brýnt að borgaryfirvöld taki þátt í baráttunni gegn vændi af fullum krafti. Vændi er oft síðasta úrræði margra heimilislausra kvenna til að eiga húsaskjól þegar kólna tekur. Borgaryfirvöld þurfa að horfast í augu við það að ungar konur og karlar leiðast oft út í vændi til að fjármagna eiturlyfjaneyslu og sefa fíkn.  Það er ekki hægt að líta fram hjá því að vændi og mansal eru nátengd fyrirbæri. Mikilvægt er að borgaryfirvöld gefi það skýrt til kynna að vændi á ekki að vera valkostur og er ekki viðurkennd atvinnugrein.

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu skorar því á nýjan meirihluta í borginni að stinga ekki höfðinu í sandinn heldur vinna markvisst að því að uppræta vændi í borginni svo allir geti átt betra líf og búið við öryggi.
****

Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu haldinn þann 26. ágúst í Reykjavík skorar á skipulagsráð Reykjavíkur að koma til móts við óskir Félags Múslíma og útvega þeim lóð undir mosku. Moska er jafn mikilvæg bygging í augum múslima og kirkjan er í augum kristinna manna og því óskiljanlegt að ráðið hafi hafnað beiðnum félagsins ítrekað.
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu vilja minna fulltrúa í nýkjörnu skipulagsráði Reykjavíkurborgar á að samkvæmt stjórnarskrá Íslands ríkir trúfrelsi á Íslandi og 65. grein hennar tekur skýrt fram að bannað sé að mismuna fólki eftir trú þess. Að þeim forsendum gefnum er algjörlega ólíðandi að múslimum hafi verið neitað um bænahús í Reykjavík.
 

Vinstri græn óska nýrri stjórn góðs gengis á komandi starfsári



Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica