Fréttir

Landið tekur að rísa !

19.8.2010

Steingrímur J. SigfússonSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, skrifar í dag á Smuguna fyrstu grein í greinaflokki um orsakir og afleiðingar bankahrunsins.

 

Steingrímur segir vandann djúpstæðari en svo að hægt sé að velta allri ábyrgðinni af hruninu yfir á hegðun bankaforkólfa og viðskiptajörva því hrunið eigi rætur sínar að rekja til hugmyndafræðilegra þátta. „Hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar náði með lúmskum hætti að hreiðra um sig í íslenskum stjórnmálum og setja viðmið í opinberri umræðu. Er það einkum þrennt sem veldur því að sú skýring á við þegar litið er til orsaka bankahrunsins. Í fyrsta lagi sá áróður að einkaaðilar gerðu yfirleitt allt betur en ríkið og því væri þeim best treystandi fyrir flestum hlutum. Í öðru lagi að til væri einhver ósýnileg hönd sem stýrði markaðsgangvirkinu og það sæi um að  leiðrétta sig sjálft. Og í þriðja lagi að sökum þessarar sjálfgefnu innbyggðu skynsemi markaðarins þyrfti ekki að hafa eftirlit með honum eða að slíkt ætti að a.m.k. að vera í algjöru lágmarki. Allar þessar þrjár forsendur höfum við nú séð að eru rangar.“

Hann gengur svo langt að segja að „á sinn hátt má segja að gagnrýnin hugsun hafi beðið ósigur, ekki aðeins í  í viðskiptum, heldur einnig í fjölmiðlun, stjórnsýslu, og almennri þjóðmálaumræðu“ og veltir fyrir sér hvað hafi orsakað andvaraleysið.

 

Greinina er hægt að lesa í heild sinni á Smugunni

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica