Besti flokkurinn gengur til liðs við stóriðjuarm Samfylkingarinnar
Yfirlýsing frá Sóleyju Tómasdóttur
Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt umsögn borgarlögmanns um frumvarp iðnaðarráðherra til laga um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Meirihluti Samfylkingar og Besta flokks samþykktu umsögnina þar sem fram kom talsverður ákafi gagnvart rannsóknum og orkunýtingu á friðlýstum svæðum, þvert á áform ríkisstjórnarinnar.
Þar var lýst yfir áhyggjum vegna þess að friðlýst svæði væru útilokuð frá nýtingaráætluninni og rökstuddu borgarráðsfulltrúar meirihlutans afstöðu sína með því að orkurannsóknir gætu leitt til aukins verndargildis til framtíðar. Borgarráðsfulltrúi Vinstri grænna kannast ekki við orkurannsóknir sem hafa hagsmuni friðlýstra svæða að leiðarljósi heldur eru þær ætíð unnar vegna hagsmuna orkufyrirtækja með nýtingu svæðisins í huga.
Þessi afstaða borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar vekur upp spurningar um stefnu flokksins í umhverfis- og náttúruverndarmálum sem flaggað er þegar þurfa þykir. Að sama skapi er sorglegt að Besti flokkurinn skuli slást í lið með stóriðjuarmi Samfylkingarinnar í að lítilsvirða friðlýsingar og náttúruvernd undanfarinna áratuga og ómetanleg svæði á borð við Öskju, Fjallabak og Vonarskarð. Betur hefði farið á því að flokkur sem gefur sig út fyrir umhverfisvernd stæði með náttúrunni og þeim svæðum sem hafa hlotið þann sess sem þeim ber.

