Fréttir

VGR ályktar um manneklu

24.8.2005

Stjórn VGR lýsir áhyggjum sínum vegna þess ástands sem skapast hefur í frístundaheimilum og leikskólum borgarinnar vegna manneklu. Það er mikilvægt markmið að bjóða öllum börnum frá 18 mánaða aldri öruggt pláss á leikskóla og 6-9 ára börnum upp á faglegt starf í frítímum sem viðbót við hefðbundinn skóladag. Það ber sérstaklega að fagna þeim metnaði sem ÍTR setur sér í þessu efni. Stjórn VGR skorar á borgaryfirvöld að meta í verki uppeldis- og umönnunarstörf og að þau bregðist við nú þegar til að tryggja að starfsfólk fáist til þessara starfa.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica