Ámælisvert að ákvarðanir æðstu stofnana borgarinnar séu hunsaðar
Á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag fékk Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarfulltrúi VG, tekna á dagskrá tillögu sína frá 6. maí síðastliðnum þar sem samþykkt var að skipuð yrði nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að yfirfara stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.
Hann lagði til að borgarráð myndi nú þegar hefjast handa við að skipa í nefndina. Borgarráð varð ekki við því og var tillögunni frestað. Af þessu tilefni bókaði Þorleifur:
„Borgarráðsfulltrúi VG harmar þá töf sem orðið hefur á skipan nefndar sem framkvæma á úttekt á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Í raun er um að ræða hunsun sem nýr meirihluti hefur tekið í arf frá þeim gamla. Borgarráð ákvað þann 6. maí sl. að skipa nefnd til að framkvæma viðamikla rannsókn á stjórnsýslu, stjórnkerfi og aðkomu stjórnmálafólks að fjárhagslegum ákvörðunum á undanförnum árum. Til stóð að skipa í nefndina á borgarstjórnarfundi 18. maí en þegar ljóst var að það tækist ekki, lagði borgarráðsfulltrúi VG til á borgarstjórnarfundinum að auglýst yrði eftir þremur sérfræðingum í nefndina. Tillagan var samþykkt einróma og jafnframt að borgarráð skyldi skipa í nefndina á fundi sínum 27. maí. Fyrir þann tíma höfðu borist fjöldi umsókna og tilnefninga í nefndina og um það var rætt að málið hefði forgang þegar tímafrestur væri liðinn sem var 24. maí. Nú eru liðnir tæpir tveir mánuðir og ekki bólar á nefndinni. Þessi seinagangur og hunsun á ákvörðunum æðstu stofnana borgarinnar er ámælisverður og ýtir enn frekar undir kröfuna að um að nefnd sem rannsaka á stjórnkerfi og stjórnsýslu borgarinnar taki þegar til starfa.“

