Fréttir
Tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar um sérstakan sumarstyrk samþykkt
Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti nú fyrir stundu tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar fulltrúa VG í ráðinu um sérstakan sumarstyrk til fólks sem nýtur fjárhagsaðstoðar frá borginni og barna þeirra. Veittur verður styrkur að upphæð 15.000 krónur til hvers einstaklings sem nýtur fjárhagsaðstoðar og 5000 krónur til hvers barns. Þannig mun einstæð móðir með 2. börn sem nýtur fjárhagsaðstoðar frá borginni fá 25.000 króna sumarstyrk svo dæmi sé tekið.

