Vinstri græn á ferð um Dalasýslu
Félagsstarf Vinstri grænna er nú komið á fulla ferð og undirbúningur haustþings hafinn.
Í dag fimmtudag 25. ágúst verða þingmennirnir Kolbrún Halldórsdóttir og Jón Bjarnason ásamt Svandísi Svavarsdóttir nýráðnum framkvæmdastjórai Vinstri grænna á ferð um Dali.
Svandís tók við framkvæmdastjórastöðu flokksins nú 1. ágúst. Hún er dalamaður í föðurætt og fer því vel á að eitt af fyrstu verkum hennar í starfi framkvæmdastjóra Vinstri grænna, sé heimsókn í Dali.
Um kvöldið verður fundur í Búðardal þar sem rætt verður um stjórnmálviðhorfið og áherslur Dalamanna og stofnað verður félag Vinstri grænna í Dölum. Ásmundur Daðason frá Lambeyrum stýrir fundinum sem hefst klukkan 20.30 í Hótel Bjargi.
Allir velkomnir!

