Fréttir

Ný framkvæmdastýra Vinstri grænna

26.6.2010

Audur Lilja Erlingsd NET
Audur Lilja Erlingsd NET

Við upphaf flokksráðsfundar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs var tilkynnt um ráðningu Auðar Lilju Erlingsdóttur í stað Drífu Snædal sem framkvæmdastýru flokksins. Um leið og Vinstri græn bjóða Auði Lilju velkomna til starfa eru Drífu færðar ómældar þakkir fyrir framlag sitt til flokksins undanfarin fjögur ár. Auður Lilja er stjórnmálafræðingur, útskrifuð með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá Háskóla Íslands. Auður Lilja hefur starfað lengi innan VG, sem formaður Ungra Vinstri grænna, fulltrúi í aðalstjórn flokksins og sem varaþingkona. Auður Lilja er gift Frey Rögnvaldssyni og eiga þau tvö börn saman. Auður hefur störf á flokksskrifstofunni 1. júlí.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica