Fréttir

Flokksráðsfundur í Reykjavík og GOSI 2010

24.6.2010

090127 flokksradsfundur
090127 flokksradsfundur

Vinstrihreyfingin – grænt framboð boðar til flokksráðsfundar í Reykjavík á föstudag og laugardag og hefst fundurinn klukkan 17 á Grand Hóteli. Fundurinn er sá fyrsti eftir sveitastjórnarkosningarnar og því verður farið vel yfir þær auk alls annars sem félögum liggur á hjarta. Flokksráðsfundir eru æðstu fundir á milli landsfunda og eru opnir öllum félögum í VG. Atkvæðisrétt á fundinum hafa félagar í flokksráðinu en þeir eru: Allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn, varaalþingismenn, formaður Ungra Vinstri Grænna, formenn svæðisfélaga og formenn kjördæmisráða auk þrjátíu landsfundakjörinna fulltrúa.

 

Dagskrá fundarins er svo:

 

Föstudagur 25. júní

17.00: Setning flokksráðsfundar, kynning ályktana og starfshópa. Yfirlit yfir úrslit sveitarstjórnarkosninga og myndun meirihluta.

17.30: Starfshópar taka til starfa.

                        Sveitarstjórnarmál

                        Flokksstarfið

                        Endurmótun Íslands

19.30: Kvöldmatur

20.30: Almennar stjórnarmálaumræður.

22.30: Starfshópar taka að nýju til starfa.

 

Laugardagur 26. júní

9.00:    Stuttar kynningar starfshópa og framhald almennra stjórnmálaumræðna.

12.00: Hádegisverður.

13.00: Kynning á Rannsóknaskýrslu Alþingis og aðgerðum í kjölfar hennar. Kristín Ástgeirsdóttir flytur erindi - fyrirspurnir og umræður.

14.00: Afgreiðsla ályktana.

15.00: Fundi slitið. 

 

Eftir að fundi lýkur verður haldið í sumarferð í Fljótshlíðina en ferðin ber að sjálfsögðu nafnið GOSI 2010.

 

 

kveðja,

 

Drífa Snædal

framkvæmdastýra

Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs

s 695 1757

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica