Fréttir
VG á Akureyri opna skrifstofu
Laugardaginn 27. ágúst eða nánar tiltekið á Akureyrarvöku kl 15.00 opna VG á Akureyri skrifstofu sína með pomp og prakt.
Við opnunina munu sex ungir listamenn sýna verk sín á samsýningu og gestum verður boðið að skrifa skilaboð til VG eða ríkisstjórnarinnar á vegg hússins. Wolfgang og Ólafur Haukur munu spila létta músík eins og þeim er lagið og Andy Brooks mun einnig spila og syngja. Léttar veitingar verða í boði.
Undanfarið hefur staðið yfir andlitslyfting á húsnæðinu og það gert klárt til notkunar. Þetta hefur kostað nokkuð margar vinnustundir fjölda fólks og þó ekki sé allt búið enn þá er það nú orðið tímabært að opna það formlega. Enn vantar nafn á húsið svo ef einhver lumar á góðri hugmynd þá verður tillögubox á staðnum. Svo vonast félagið til að sjá sem flesta við opnunina og í vetur því margt er framundan í starfinu.
Stjórn VG á Akureyri

