Fréttir

Meirihlutasamstarf Samfylkingar og Vinstri grænna í Hafnarfirði staðfest

8.6.2010

Gudrun-Agusta-Gudmundsdottir
Gudrun-Agusta-Gudmundsdottir

Samkomulag um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar milli Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var staðfest á fundum flokkanna í kvöld.  Jafnframt var samþykktur málefnasamningur flokkanna og ítarleg verkefnaskrá til næstu fjögurra ára auk samkomulags um skipan í kjörin embætti á kjörtímabilinu.   Yfirskrift málefnasamnings Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Hafnarfirði er:  Velferð, lýðræði, atvinna og umhverfi fyrir fólkið í Firðinum.

Nýi meirihlutinn mun leggja ríka áherslu á að standa vörð um félagsleg sjónarmið og lausnir við rekstur bæjarins og tryggja um leið ábyrga fjármálastjórnun.  Þá verður  lögð sérstök áhersla á að bæta möguleika Hafnfirðinga til beinnar þátttöku í stefnumótun og ákvarðanatöku um mál sem þá varðar og efnt verður til margvíslegra aðgerða til að tryggja aukin áhrif íbúanna og aðgang að stjórnkerfi og upplýsingum.  Leitað verður eftir víðtæku samráði og  samvinnu milli allra bæjarfulltrúa og starfsmanna bæjarins til að fylgja  eftir góðum árangri og bæta enn frekar rekstur bæjarins með hagkvæmni, aðhaldi og góðu skipulagi.  Meginmarkmiðið er að tryggja jákvæða rekstrarafkomu og auka á ný veltufé frá reksti.

Staðinn verður vörður um velferðarþjónstu bæjarins og lögð áhrerslu á fjölbreytt atvinnulíf á forsendum sjálfbærrar þróunar í samræmi við fyrirhugaða umhverfis- og auðlindastefnu bæjarins.  Höfuðáhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu á verðmætum atvinnusvæðum í eigu bæjarfélagsins.  Áhersla verður á markvissa framþróun í leik og grunnskólum og aðkoma íbúa og starfsfólks að þróun og uppbyggingu skólastarfs verður efld.  Heilbrigður lífsítll og almenn lýðheilsa verða í forgrunni í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi og lögð áhersla á að rækta, menningararf og sérkenni Hafnarfjarðar í umhverfi, byggingum og skipulagi.

Samkomlag flokkanna varðandi stjórnsýslu bæjarfélagsins byggir á jafnræði og trausti sem er grundvöllur ábyrgs og framsækins samstarfs. Núverandi bæjarstjóri Lúðvík Geirsson mun gegna því embætti fram til júní 2012, en þá mun oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir taka við embætti bæjarstjóra út kjörtímabilið.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica