Fréttir

Yfirlýsing frá Steingrími J. Sigfússyni vegna voðaverka Ísraelshers

1.6.2010

island_palestina
island_palestina

 

Þarsíðustu nótt gerðist sá hörmulegi og sorglegi atburður að ráðist var á forystuskip í 6 skipa flota sem lagði upp frá Kýpur og hélt áleiðis til Palestínu. Skipið var mannað friðarsinnum og bar um 10.000 tonn af hjálpargögnum til íbúa á Gazasvæðinu. Árásin var gerð með hervaldi og átti sér stað á alþjóðlegu hafsvæði. Árásaraðilinn var Ísraelsher. Hermenn úr einum öflugasta her í heimi réðust á hóp friðarsinna en á meðal þeirra voru margir Norðurlandabúar, þingmenn Evrópuþingsins sem og fulltrúar friðarhreyfinga.

Árásin var blóðug og friðarsinnar féllu eða særðust, enda beitt vopnum og aðferðum í engu samræmi við aðstæður og tilefni. Þessi voðaverknaður er með öllu ólíðandi og algjörlega ótækt að sitja hjá aðgerðalaust eða horfa undan. Íslensk stjórnvöld kröfðust þess í gær að Ísrael aflétti herkvínni gegn Gaza nú þegar. Utanríkisráðherra fordæmdi árásina og tók undir kröfur Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna um að árásin verði rannsökuð í þaula. Þá mótmælti utanríkisráðherra framgöngu Ísraela harðlega í bréfi til utanríkisráðherra Ísraels. Íslensk tjórnvöld hafa óskað eftir fundi vegna málsins með sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi sem starfar í Osló. Formaður utanríkisnefndar Alþingis, Árni Þór Sigurðsson, telur rétt að Íslendingar endurskoði stjórnmálalegt samband sitt við Ísrael. Utanríkisnefnd fjallar um atburðinn á fundi og Ögmundur Jónasson alþingismaður verður málsehefjandi í utandagskrárumræðum um málið á Alþingi í dag.

Alþjóðasamfélaginu ber skylda til að bregðast við þessum voðaatburði. Leiðtogum allra stjórnmálaflokka hér á landi, líkt og í nágrannaríkjum okkar, ber siðferðisleg skylda til að fordæma framgöngu ísraelska hersins. Þetta voðaverk er enn ein birtingarmynd hinnar glæpsamlegu einangrunar Gazsvæðisins. Aflétta verður herkvínni á Gaza enda má fullyrða með réttu að það sé einni og hálfri milljón haldið í risavöxnu fangelsi án dóms og laga og réttur gróflega brotinn á hverri einustu manneskju sem þar býr. Aðgerðir ísraelska hersins sem ollu dauða óbreyttra borgara á leið með hjálpargögn til þurfandi fólks bætast nú við langvarandi mannréttindabrot gegn íbúum Gazasvæðisins og stríðsglæpina sem framdir voru í innrás Ísraelhers á svæðið fyrir nokkru síðan.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur frá stofnun lagst gegn hvers kyns hernaði, vígvæðingu og hernaðarbrölti. Við styðjum friðsamlega baráttu fyrir félagslegu réttlæti, lýðræði og mannréttindum án landamæra svo ekki sé talað um rétt almennra borgara og borgaralegra samtaka til að aðstoða meðbræður í neyð. Fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fordæmi ég aðgerðir Ísraelshers og lýsi fullri ábyrgð á hendur ísraelskra stjórnvalda.

Steingrímur J. Sigfússon

fjármálaráðherra og formaður VG

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica