Fréttir
Stjórn UVGR ályktar um leikskóla
Stjórn Reykjavíkurfélags Ungra vinstri grænna skorar á borgaryfirvöld í Reykjavík að draga til baka ákvörðun sína um gjaldskrárbreytingu leikskóla borgarinnar. Það er með öllu óásættanlegt að fjölskyldur þar sem að annað foreldri stundar nám verði með þessari breytingu fyrir verulegri útgjaldaaukningu en sú aukning nemur allt að 81.180 krónum á ársgrundvelli.
Með þessu er verið að ganga þvert gegn yfirlýstri stefnu borgaryfirvalda um að gera Reykjavíkurborg að fjölskylduvænu samfélagi. Það má teljast í hæsta máta óeðlilegt að Reykjavíkurlistinn, sem að kennir sig við félagshyggju, standi á þennan hátt að málum.
Það er til skammar fyrir borgaryfirvöld ef að þessi áform ná fram að ganga. Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík mótmælir slíkum vinnubrögðum harðlega og hvetur borgaryfirvöld til að endurskoða tafarlaust þessar breytingar.

