Fréttir

Ágæti kjósandi

29.5.2010

Kata og Steingrímur
73BW8274

í dag göngum við til atkvæða og kjósum sveitarstjórnir um land allt.

Á síðustu misserum höfum við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði sýnt kjark til að takast á við erfið verkefni og vilja til að vinna með öðrum að úrlausn flókinna mála. Við höfum komið okkar málstað á framfæri og leggjum áherslu á málefnalegar umræður og heiðarlega stjórnmálabaráttu. Við hvetjum þig til að kynna þér áherslur okkar, t.d. hér á heimasíðunni.

Sveitarstjórnarkosningarnar eru ekki síður uppgjör við þá frjálshyggju sem leiddi okkur á glapstigu en alþingiskosningarnar voru fyrir ári. Við höfum lagt áherslu á að endurmeta þurfi stefnu og hugmyndafræði sveitarfélaganna og hreinsa til þar sem þess gerist þörf. Heiðarlegt uppgjör við hugmyndafræði hrunsins er nauðsynleg forsenda endurreisnar. Samfélag framtíðarinnar verður að byggja á trausti, virku lýðræði og félagslegu réttlæti.

Við bjóðum fram víða um land og hvetjum þig til að setja X við V.
 
Kveðja,
Steingrímur og Katrín

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica