Frá stjórnmálaflokkum í Hafnarfirði
Stjórnmálaflokkarnir, sem bjóða fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði ætla að svara kalli bæjarbúa og hafa boðað til sameiginlegs framboðsfundar í Hafnarborg, fimmtudagskvöldið 27. maí n.k. Fundurinn hefst kl. 20:00.
Fundarstjórar verða Svavar Halldórsson fréttamaður hjá RUV og Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður.
Sú takmarkaða umfjöllun, sem ríkisfjölmiðlarnir bjóða uppá fyrir bæjarstjórnarkosningarnar er engan veginn nóg til þess að fullnægja kröfunni um upplýsta og lýðræðislega umræðu fyrir mikilvægar kosningar. Fundinum verður sjónvarpað beint á vefveitu Hafnarfjarðarbæjar og hægt verður að skoða upptöku af fundinum á vefnum www.hafnarfjordur.is
Fjölmiðlar eru hérmeð boðnir velkomnir á þennan fund stjórnmálaflokkanna í Hafnarfirði með bæjarbúum.
Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði
Samfylkingin í Hafnarfirði
Vinstri græn í Hafnarfirði


