Langisjór - náttúruperla eða virkjanalón
Svæðisfélag Vinstri grænna á Mið-Suðurlandi stendur fyrir málþingi um virkjanahugmyndir við Langasjó. Málþingið verður haldið í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli sunnudaginn 4. september og hefst kl.14.00. Þar flytja erindi verkefnisstjóri Landsvirkjunar, Guðlaugur V. Þórarinsson, jarðfræðingurinn Snorri Páll Snorrason, hagfræðingurinn Sigurður Jóhannesson og fulltrúi Náttúruverndarsamtaka Suðurlands. Síðan taka við opnar umræður þar sem gestum gefst færi á að koma sínum skoðunum á framfæri og leita svara við spurningum sem brenna á þeim varðandi virkjanamálin. Heitt verður á könnunni og við vonumst til að sjá sem flesta.
Stjórn VG á Mið-Suðurlandi

