Fréttir

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar treystir sér ekki í rannsókn

20.5.2010

OlafurThorGunnarssonNET
OlafurThorGunnarssonNET

Bæjarráð Kópavogs treysti sér ekki til að samþykkja tillögu VG um rannsóknarskýrslu í Kópavogi á fundi sínum í dag.  VG lagði fram tillögu um málsmeðferð. Tillaga meirihlutans um að vísa málinu til endurskoðunar fjárhagsáætlunar var samþykkt. Aftan við þá tillögu var hnýtt að oddvitar flokkanna í bæjarstjórn fundi „hið fyrsta“ til að koma sér saman um úrvinnslu. Bæjarráð velur því að draga lappirnar, væntanlega í þeim tilgangi að svæfa málið.

Menn muna kannski að í Reykjavík hefur þegar verið auglýst eftir 3 sérfræðingum til að vinna rannsóknarskýrslu.

Það er morgunljóst að haldi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir kosningar mun ekki þurfa að spyrja að örlögum tillögunnar. Meirihlutaflokkarnir treysta sér engan veginn til að láta skoða eigin gerðir og beita nú öllum ráðum til að þæfa málið fram yfir kosningar.

Það er merkilegt að meirihlutinn sem skilur fjármál bæjarins eftir í algerri rúst skuli  nú grípa til þess ráðs flækja málið á fjármálalegum forsendum. Þessi sami meirihluti hikaði ekki við að skuldbinda bæinn um fleiri milljarða þegar Glaðheimalandið var keypt eða þegar ævintýrið í Kórnum var sett af stað. 

 Eru skilaboðin til bæjarbúa  þau að  bygging Kórsins, kaupin á Glaðheimalandinu, uppfyllingar á Kársnesi, framkvæmdir í Heiðmörk, lóðaúthlutanir, skipulag Kársness,  sala vatns til Garðbæinga með afslætti, kaup á Vatnsendalandi, viðskipti bæjarins við vini og vandamenn, mannaráðningar og fjöldi annarra ákvarðana  hafi verið teknar  á opinn og gegnsæan hátt og með hagsmuni allra bæjarbúa að leiðarljós ? 

Vinstri græn vilja breytt vinnubrögð.  Skýrslan er nauðsynlegt  tæki til að byggja upp öfluga og gegnsæa stjórnsýslu í bænum.

Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi VG, s: 864 2954

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica