Fréttir

Engar blekkingar í borgarstjórn!

20.5.2010

skyringamynd-med-VGR-grein
skyringamynd-med-VGR-grein

Öll framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur segjast ætla að verja grunnþjónustu borgarinnar eins og hún er í dag, án þess þó að segja hvernig eigi að fjármagna hana. Vinstri græn sjá enga ástæðu til að fela fyrirætlanir sínar, við tölum um hlutina eins og þeir eru og gerum það sem þarf.

Sameiginlegir sjóðir almennings hafa verið rýrðir til muna af frjálshyggjuöflunum sem stýrt hafa samfélaginu undanfarin ár. Því er ljóst að annað hvort verður að skera niður hjá Reykjavíkurborg eða auka tekjur hennar. Allt annað er blekking. Niðurskurður undanfarinna ára hefur gengið allt of nærri grunnþjónustunni og því ekkert annað í stöðunni en að afla meiri tekna. Til þess eru tvær leiðir: Að fullnýta útsvarið eða hækka gjaldskrár fyrir þjónustu. Vinstri græn ætla að fullnýta útsvarið.

Útsvarshækkun „seilist grynnra í vasa borgarbúa“ en gjaldskrárhækkun

Fullnýting útsvars eykur tekjur borgarinnar um 700 milljónir króna á ári. Til að innheimta þá upphæð með þjónustugjöldum þyrfti að hækka allar gjaldskrár borgarinnar um 7,46% að jafnaði. Með tekjuaukningu upp á 700 milljónir er hægt að fjármagna næstu skref í átt að gjaldfrjálsum skólamáltíðum, koma í veg fyrir frekari niðurskurð og hækka fjárhagsaðstoð borgarinnar til einstaklinga.

Á  myndinni má sjá hvaða áhrif ólíkar leiðir hefðu á útgjaldaauka hjá ólíkum fjölskyldum sem eiga eitt barn í leikskóla og eitt í grunnskóla. Dæmin sýna þrjá tekjuhópa sambýlisfólks annars vegar og einstæðra foreldra hins vegar. Rétt er að taka fram að hér er ekki tekið tillit til hækkunar allra annarra gjaldskráa hjá borginni, þ.m.t. fyrir hita, rafmagn, strætó, sund og bókasöfn en þau myndu að sama skapi þurfa að hækka um 7,46% til að ná sömu tekjuaukningu og fullnýting útsvars. Þannig myndu útgjöld þessara fjölskyldna hækka mun meira en hér kemur fram.

skyringamynd-med-VGR-grein

Myndin sýnir að gjaldskrárhækkun eykur ársútgjöld sambúðarfólksins um 26.100 kr. og einstæðu foreldranna um 16.703 kr. Útsvarshækkun fer hins vegar eftir tekjum viðkomandi. Úsvarshækkun kæmi því betur út fyrir sambýlisfólk með árslaun allt að 10,4 m.kr. (870 þ.kr. á mánuði mánuði) og einstæða foreldra með árslaun að 6,7 m.kr. (560 þ.kr. á mánuði) en eftir það myndi úhækkun útsvars leiða til meiri kostnaðar en  gjaldskrárhækkanir.

Útsvarshækkun kemur sér betur fyrir 70% sambýlisfólks og 90% einhleypra. Hún hefur engin áhrif á þau 30% sem eru undir skattleysismörkum (1,43 m.kr. í árslaun/119 þ.kr. á mánuði) en gjaldskráhækkun hefur áhrif á alla sem nota þjónustuna óháð tekjum. Flestir námsmenn, ellilífeyrisþegar og örykjar eru í þessum hópi. Gjaldskrárhækkun er því ekkert annað en skattlagning á þá sem minnstar tekjur hafa í samfélaginu.

Hér kristallast vel hugmyndafræðilegur munur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. Nauðsynlegt er að framboð til borgarstjórnar svari því hvernig þau hyggjast verja velferð og grunnþjónustu í borginni. Kostirnir eru fáir; þjónustuskerðing, gjaldskrárhækkun eða útsvarshækkun. Vinstri græn velkjast ekki í vafa um ábyrgð sína, né heldur hver sanngjarnasta leiðin er. Önnur framboð verða að svara fyrir sig.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica