Fréttir

Borgarstjórn samþykkir lýðræðisumbótahugmynd Vinstri grænna

18.5.2010

1-soleytomasdottir
1-soleytomasdottir

 

Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu borgarfulltrúa Vinstri grænna um árlega opna borgarafundi á vegum Reykjavíkurborgar þar sem kjörnir fulltrúar sitja fyrir svörum. Markmiðið með tillögunni er að bregðast við kröfu samfélagsins um lýðræðislegri stjórnunarhætti, að hvetja borgarbúa til aukinna áhrifa og þátttöku í stjórnmálaumræðunni og að styrkja samband kjörinna fulltrúa við umbjóðendur sína. Fundirnir eru fyrst og fremst vettvangur fyrir beint samtal milli borgarbúa og kjörinna fulltrúa, um hvers kyns mál sem kunna að koma upp. Gert er ráð fyrir að þeir verði undirbúnir af hverfisráðum í samráði við íbúasamtök og þjónustumiðstöðvar. Tillagan er liður í því að bæta þjónustu og tryggja áhrif borgarbúa á hana.

Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna telur mikilvægum áfanga náð í að efla borgaralýðræði. Hún segir að það skipti miklu máli að raddir borgarbúa heyrist og þeir séu virkir í að móta umhverfi sitt og umræðuna um borgina. „Við verðum öll að leggja okkar af mörkum og vera virk í samfélaginu og umræðunni. Þessir fundir eru góður vettvangur skoðanaskipta og til að auka enn frekar áhrif og aðkomu Reykvíkinga að málum sem þeim eru hjartfólgin. Þeir eiga vonandi eftir að vinda upp á sig og sanna mikilvægi sitt,“ segir Sóley Tómasdóttir að lokum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica