Nýtt húsnæði opnað á Akureyri
Laugardaginn 27. ágúst var nýtt húsnæði VG á Akureyri opnað með pomp og pragt. Steingrímur J. Sigfússon og Þuríður Backman voru viðstödd svo og Valgerður bæjafulltrúi okkar Akureyringa. Margt góðra gesta bar að garði enda var opnað með sýningu fimm ungra listamanna. Verk þeirra vöktu marga til umhugsunar enða áhugaverð.
Húsið er vel staðsett í miðbænum og hafa félagarnir vonir um öfluga starfsemi. Sitt lítið af hverju er eftir í endurbótum en unnið er í takt við fjárhaginn enda mikilvægt sað gæta þess að safna ekki skuldum.
Það er alveg ljóst að húsnæðið á eftir að verða félaginu lyftistöng.
Mánudagskvöldin eru þegar notuð undir bæjarmálafundi og spjall hjá Akureyradeildinni. Hægt er að líta inn á þá kl. 20.00. Ungir VG félagar munu verða með uppákomur og fundi. Aðalfundur svæðisfélags VG á Akureyri er fyrirhugaður 22. sept. Ennþá er ekki búið að ganga frá dagskrá.
Það er von félagsmanna að sem flestir leggi leið í miðstöðina. Í hússtjórn sitja Hallur Gunnarsson Akureyri, Valgerður Jónsdóttir Eyjafjarðarsveit og Dýrleif Skjóldal Akureyri.

