Tilkynning um starf
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tilkynnir að í vændum er að ráða í stöðu framkvæmdastýru / -stjóra flokksins. Umsóknir skulu berast bréflega Vinstri Grænum, phólf 175, 121 Reykjavík eða á tölvupósti til drifa@vg.is fyrir 10. júní 2010. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í júlí.
Meðal þess sem er á starfssviðinu er umsjón með daglegum rekstri flokksins, þ.m.t. fjármálum, umsjón með félagatalinu, samskipti við kjördæmaráð og svæðisfélög, umsjón funda, stjórnun heimasíðu og samskipti við fjölmiðla.
Nánari upplýsingar veitir fráfarandi framkvæmdastýra VG Drífa Snædal, s: 695 1757, tp: drifa@vg.is

