Allt á fullu í Reykjanesbæ
VG í Reykjanesbæ verður með kvöldfundi öll virk kvöld fram að kosningum þar sem frambjóðendur fá til sín góða gesti og ræða pólitík. Fundirnir hefjast klukkan 20. Fyrsti fundurinn verður á mánudaginn undir yfirskriftinni menntamál. Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir og fulltrúi frá menntasviði Reykjanesbæjar munu fara yfir sviðið og hefja umræðuna.
Á þriðjudag verður menningar kvöld og þar munu rithöfundarnir Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Vikarsson lesa úr verkum sínum og Stjáni Meik les ljóð.
Miðvikudagur 19. Maí koma þeir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Atli Gíslason, alþingismaður til þess að ræða sjávarútveg, atvinnu og byggðamál.
Verið öll velkomin.

