Utankjörfundarskilaboð frá framkvæmdastýru VG
Ég vil minna þig á að utankjörfundur er hafinn þannig að nú þegar er hægt að setja X við V. Ef þú verður að heiman á kjördag er mikilvægt að skila atkvæðinu og eins að hvetja fólk í kringum þig til að kjósa ef það verður að heiman.
Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt, í Laugardalshöllinni og einnig hjá sendiráðum og ræðismönnum erlendis. Nánari upplýsingar má fá hér: http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar/leidbeiningar/kjosendur/utankjorfundur/
Kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum eiga:
· Íslendingar 18 ára og eldri með lögheimili í sveitarfélaginu þrem vikum fyrir kjördag.
· Aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag.
Nánari upplýsingar má fá á kosningamiðstöðvum sveitarfélaga um allt land: http://www.vg.is/kjordaemi/
Tryggjum að öll Vinstri græn atkvæði skili sér!


