Ályktun umræðufundar VGR um rannsóknarskýslu Alþingis
Rannsóknarskýrsla Alþingis er vönduð, trúverðug og óvægin og hún afhjúpar spillta sambúð stjórnmála, stjórnsýslu og viðskiptalífs. Hún varpar ennfremur ljósi á einsleitni viðskiptalífsins, andvaraleysi þjóðarinnar á árunum fyrir efnahagshrunið og vanmáttugt eftirlitskerfi stjórnvalda með vafasömu sýndarhagkerfi.
Skýrslan er sjúkdómsgreining sem kallar á þjóðfélag sem setur manneskjuna ofar peningum; hún kallar á aukna siðgæðis- og borgaravitund á öllum sviðum samfélagsins og krefur alla Íslendinga um svör við því hvernig þjóðfélag við viljum byggja upp til framtíðar.
Með ríkisstjórnarsamstarfi við Samfylkinguna ber VG ábyrgð á stöðu mála í dag og leiðum til úrbóta í anda þess sem fram kemur í skýrslunni.


