Fréttir

Kosningarnar í vor snúast um hugmyndafræði

9.5.2010

Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir

Öruggur leigu- og kaupleigumarkaður, fjölbreytt atvinnusköpun á vegum borgarinnar, strætó sem grunnþjónusta og sorpflokkun við heimili fólks eru meðal þeirra málefna sem Vinstrihreyfingin grænt framboð setur á oddinn fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Efnt var til blaðamannafundar í kosningamiðstöð hreyfingarinnar við Suðurgötu 10 í dag, sunnudag.

„Kosningarnar í vor snúast fyrst og fremst um hugmyndafræði. Sagt hefur verið að þetta sé ekki kosningabarátta hinna stóru kosningaloforða. Það er ekki rétt. Við núverandi aðstæður er það gríðarlega stórt loforð að ætla að tryggja velferð og grunnþjónustu hjá borginni, að ég tali nú ekki um fleiri húsnæðisúrræði og fjölbreytta atvinnusköpun á hennar vegum. Þetta er það sem við treystum okkur til að lofa,og það með félagslegt réttlæti að leiðarljósi." Sagði Sóley Tómasdóttir, oddviti framboðsins.

 Vinstra grænt vor!

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica