Vinstri græn bjóða fram í fyrsta sinn í Strandabyggð
Birtur hefur verið framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Strandabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 29. maí 2010. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Vinstri græn bjóða fram sérstakan lista til sveitarstjórnar á Ströndum og fylgir hann með hér að neðan.
Strandabyggð sem er fjölmennasta sveitarfélagið af fjórum á Ströndum búa rúmlega 500 manns. Hólmavík er þéttbýliskjarninn í sveitarfélaginu, sem teygir frá Bitrufirði á Ströndum norður í Steingrímsfjörð og einnig um Steingrímsfjarðarheiði yfir í Ísafjarðardjúp, frá botni Ísafjarðar að Kaldalóni.
Málefnaskrá framboðsins og helstu áherslur verða birtar von bráðar, ásamt ítarlegri kynningu á frambjóðendunum sjálfum. Listinn er þannig skipaður:
1. Jón Jónsson, menningarfulltrúi, Kirkjubóli
2. Katla Kjartansdóttir, þjóðfræðingur, Hólmavík
3. Viðar Guðmundsson, bóndi og tónlistarmaður, Miðhúsum
4. Kristjana Eysteinsdóttir, grunnskólakennaranemi, Hólmavík
5. Þorsteinn Paul Newton, rekstrarstjóri, Hólmavík
6. Dagrún Magnúsdóttir, bóndi, Laugarholti
7. Matthías Sævar Lýðsson, bóndi, Húsavík
8. Guðrún Guðfinnsdóttir, leikskólastjóri, Hólmavík
9. Arnar Snæberg Jónsson, framkvæmdastjóri og háskólanemi, Hólmavík
10. Rósmundur Númason, vélstjóri, Hólmavík

