Vinstri græn sækja í sig veðrið í sveitarstjórnarkosningum
Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður nú í þriðja sinn fram til sveitastjórnarkosninga en flokkurinn er stofnaður 1999 og tók fyrst þátt í sveitastjórnarkosningum árið 2002. Það ár bauð flokkurinn fram í eigin nafni á átta stöðum á landinu. Ekki riðu Vinstri græn feitum hesti frá þeim kosningum og fengu einungis kjörna þrjá fulltrúa af hreinum VG-listum, í Grundarfirði, Skagafirði og á Akureyri.
Í kosningunum 2006 má segja að flokkurinn hafi fest sig í sessi á sveitarstjórnarstiginu en þá var boðið fram í eigin nafni á tólf stöðum auk þess sem VG og óháð buðu fram á Dalvík. Auk þessa tók VG þátt í 6 sameiginlegum framboðum víða um land. Árangurinn var glæsilegur og átti hin unga hreyfing 21 sveitastjórnarfulltrúa um allt land eftir kosningar, bæði af V-listum og úr blönduðum framboðum.
Enn á ný eru komnar kosningar og hefur Vinstri grænum heldur vaxið ásmegin síðan síðast. Boðið verður fram í 14 sveitarfélögum í eigin nafni, tvö framboð undir hatti Vinstri grænna og óháðra auk þess sem svæðisfélög Vinstri grænna taka þátt í 9 blönduðum framboðum. Alls verður boðið upp á Vinstri grænar áherslur í 25 sveitarfélögum auk þess sem félagar í VG eiga víða sæti á óflokksbundnum listum.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður fram V-lista á eftirtöldum stöðum:
Akranesi, Akureyri, Árborg, Borgarbyggð, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Norðurþingi, Reykjanesbæ, Reykjavík, Seyðisfirði, Strandabyggð, Hornafirði og Skagafirði.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð og óháð bjóða fram á eftirtöldum stöðum:
Grindavík og Rangárþingi Eystra.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð tekur þátt í blönduðu framboði á eftirtöldum stöðum:
Álftanesi (Á-listi), Fljótsdalshéraði (L-listi), Grundarfirði (L-listi), Hveragerði (A-listi), Ísafirði (Í-listi), Seltjarnarnesi (N-listi), Stykkishólmi (L-listi), Vestmannaeyjum (V-listi) og Ölfusi (Ö-listi).
Auk þessara framboða eiga félagar í VG víða sæti á óflokksbundnum listum.
Upplýsingar um frambjóðendur, áherslur, kosningaskrifstofur og tengla má finna á kosningasíðu flokksins: http://www.vg.is/kjordaemi/


