Fréttir
Söngur og stjórnmál hjá Eldri vinstri grænum
Þriðji fundur Eldri vinstri grænna (EVG) á þessum vetri verður fimmtudaginn 8. febrúar kl. 20:00. Fundarstaður er sem fyrr hús Eldri borgara í Reykjavík að Stangarhyl 4.
Dagskráin verður í aðalatriðum þessi:
- Nýr þátttakandi í stjórnmálum horfir fram á veginn. ? Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands. Guðfríður skipar 2. sæti á lista VG í Suðvesturkjördæmi.
- Stúlknakór Kársnesskóla syngur. ? Þórunn Björnsdóttir, tónmenntakennari, stjórnar litlum kór sem skipaður er stúlkum úr 10. bekk skólans og fræðir okkur um starf tónmenntakennarans.
- Rótgróinn innflytjandi segir frá. ? Gérard Lemarquis, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, miðlar okkur af reynslu sinni.
- Söngvar á Þorra ? Fjöldasöngur.
Kaffihlé verður um níu leitið og kleinurnar með. Munið að taka með ykkur gesti því fundir okkar eru opnir öllum sem vilja eiga með okkur skemmtilega kvöldstund.

