Fréttir

Eitthvað mun rotið í Reykjavíkurborg

6.5.2010

Ályktun stjórnar VGR um rannsóknarskýrslu fyrir Reykjavík:

Rannsóknarskýrslan um hrun íslensku bankanna leiddi í ljós alvarlega annmarka á starfsháttum vissra stjórnmálaflokka, embættismanna og þeirra viðskiptajöfra sem í daglegu tali eru nefndir útrásarvíkingar. Skýrslan leiddi ennfremur í ljós óeðlileg tengsl á milli þessara sömu hópa.

Vinstrihreyfingin-grænt framboð hefur alla tíð sneitt hjá beinum hagsmunatengslum við atvinnulífið og gagnrýnt ofurstyrkjastefnu þá sem talin hefur verið eðlileg í öðrum flokkum. Ýmsar ákvarðanir stjórnvalda undanfarin ár hafa orkað tvímælis og gefið vísbendingar um að þar hafi ráðið þröngir hagsmunir auðmanna, umfram almannahagsmuni.

Í rekstri Reykjavíkurborgar hefur ýmislegt bent til óeðlilegra vinnubragða, t.d. verktakaræðið sem hefur gilt í skipulagi og uppbyggingu borgarinnar. Mest sláandi dæmið hlýtur þó að vera hið svokallað REI-mál, þar sem komið var í veg fyrir sölu á auðlindum Reykjavíkurborgar til auðmanna fyrir smáaura. Í því máli glitti í allt það versta sem umsýsla með vald getur falið í sér - vafasamar ákvarðanir, leynimakk og óeðlileg hagsmunatengsl.

Borgarfulltrúar Vinstri-grænna hafa þegar lagt fram tillögu í borgarráði þess efnis að framkvæma þurfi rannsókn á stjórnsýslu borgarinnar undanfarin ár, enda hefur komið í ljós að margir núverandi og fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks hafa þegið háa styrki frá fjársterkum aðilum.

Stjórn VGR tekur heilshugar undir þá kröfu, enda hlýtur að teljast eðlilegt að það skýrist hvort borgaryfirvöld hafa beitt óvönduðum meðulum undanfarin ár, ekki síst í ljósi þess að borgarbúar ganga til kosninga þann 29. maí næstkomandi.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica