Fréttir

Framboðslisti í Vestmannaeyjum tilbúinn

30.4.2010

JorunnEinarsdottir_NET_1
JorunnEinarsdottir_NET_1

Framboðslisti Vestmannaeyjalistans við bæjarstjórnarkosningarnar 29. maí 2010 hefur verið ákveðinn. Listinn er boðinn fram af Samfylkingu, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og óháðum kjósendum og skipar Jórunn Einarsdóttir, sem var í framboði fyrir VG ísíðustu Alþingiskosningum annað sæti listans. Hann er þannig skipaður:

1. Páll Scheving Ingvarsson, verksmiðjustjóri   

2. Jórunn Einarsdóttir, grunnskólakennari        

3. Guðlaugur Friðþórsson, vél- og viðhaldsstjóri                 

4. Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, sjúkraliði               

5. Kristín Jóhannsdóttir, menningar- og markaðsstjóri        

6. Stefán Óskar Jónasson, verkstjóri                 

7. Þórarinn  Ingi  Valdimarsson, nemi

8. Aldís Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari                   

9. Pétur Fannar Hreinsson, skrifstofumaður

10. Díanna Þyri Einarsdóttir, skrifstofukona

11. Anton Örn Eggertsson, nemi                       

12. Jóhanna Njálsdóttir, grunnskólakennari      

13. Hörður Þórðarson, leigubílstjóri                  

14. Bergvin Oddsson, útgerðarmaður      

         Eins og listinn ber með sér er hann skipaður fólki úr ýmsum áttum, bæði fólki sem hefur öðlast góða reynslu af bæjarmálum en einnig nýju fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á sviði bæjarmála. Þá er einnig gætt að nokkuð jafnri skiptingu milli kynja. Yngri kynslóðin setur og mark sitt á framboðslistann.

         Það styttist óðum í kosningarnar, það styttist í þá stund þegar Vestmannaeyingar velja sér fulltrúa til að fara með málefni bæjarfélagsins. Vestmannaeyjalistinn er sannarlega góður kostur í þessum kosningum og þess vegna er rökrétt að fela honum ábyrgð og hlutverk næstu 4 árin. Það gerum við með því að velja X V á kjördegi.

 

             

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica