Tilkynning frá kjörstjórn
Fréttatilkynning frá kjörstjórn Vinstri grænna í Reykjavík vegna forvals fyrir borgarstjórnarkosningar 2006.
Í dag rann út auglýstur framboðsfrestur vegna forvals Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, þar sem kosnir verða fulltrúar í sex efstu sæti listans. Alls bárust 10 framboð og eru frambjóðendurnir þessir (í stafrófsröð):
Árni Þór Sigurðsson
Ásta Þorleifsdóttir
Grímur Atlason
Guðný Hildur Magnúsdóttir
Magnús Bergsson
Sóley Tómasdóttir
Svandís Svavarsdóttir
Ugla Egilsdóttir
Þorleifur Gunnlaugsson
Þorvaldur Þorvaldsson
Athygli er vakin á að kosningarétt í forvalinu hafa allir félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði sem búsettir eru í Reykjavík, en frestur til að ganga í flokkinn og hafa atkvæðisrétt í forvalinu, rennur út föstudaginn 23. september.
Sjálft forvalið verður haldið í húsnæði VG, Suðurgötu 3, laugardaginn 1. október nk. frá kl. 9-21. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður á sama stað miðvikudaginn 28. september og föstudaginn 30. september frá kl. 17-21.
Á næstu dögum mun Reykjavíkurfélag Vinstri grænna standa fyrir útgáfu kynningarrits þar sem allir frambjóðendur fá færi á að kynna sig og stefnumál sín.
Nánari upplýsingar varðandi prófkjörið veitir Stefán Pálsson í síma 617-6790.

