Rannsóknarnefndir í Reykjavík og í Kópavogi
Bæjarfulltrúar Reykjavíkur og Kópavogs, þeir Þorleifur Gunnlaugsson og Ólafur Þór Gunnarsson, hafa lagt fram tillögur um að bæði í Reykjavík og í Kópavogi verði komið á rannsóknarnefndum.
Í Kópavogi leggur Ólafur Þór til að bæjarráð komi á laggirnar sérstakri rannsóknarnefnd um efnahagshrunið eins og það snýr að bænum. Nefndinni ber m.a. að rannsaka aðdraganda, orsakir og afleiðingar efnahagshrunsins á bæjarfélagið og fjárhag þess.
Í tillögu Þorleifs kemur fram að slík rannsóknarnefnd eigi meðal annars að kanna stjórnsýslu Reykjavíkurborgar auk þess að kanna hvort einstakir embættismenn, borgarfulltrúar eða frambjóðendur til borgarstjórnar hafi hagnýtt sér persónulega eða í þágu síns flokks tengsl við fjársterka aðila sem hafa átt í viðskiptum við borgina. Tillögunni var vísað til aðgerðarhóps borgarráðs og stefnt er að því að afgreiða tillöguna á fundi borgarráðs að viku liðinni.


