Stjórnmálaflokkarnir gera samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði fyrir sveitarstjórnarkosningar
Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram til sveitarstjórna um land allt, Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 29. maí nk.
Samkomulagið felur í sér að flokkarnir skuldbinda sig til að takmarka kostnað við auglýsingabirtingar í dagblöðum, netfjölmiðlum og ljósvakamiðlum á landsvísu. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í þessum fjölmiðlum verði ekki hærri en 11 milljónir króna að meðtöldum virðisaukaskatti á tímabilinu 29. apríl til og með 29. maí nk. sem er rúmlega 20% lægri upphæð en miðað var við fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Jafnframt er samkomulag um að óháður aðili Creditinfo verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmdinni.
Samkomulagið á rætur að rekja til laga um starfsemi stjórnmálaflokka sem samþykkt voru á Alþingi í lok árs 2006. Þar var í fyrsta sinn með lagasetningu tekið á fjármögnun stjórnmálaflokkanna með það fyrir augum að gera fjármál þeirra opinber og gegnsæ, en þar eru settar skorður við fjáröflun flokkanna meðal lögaðila og einstaklinga. Sambærilegt samkomulag milli stjórnmálaflokkanna var gert fyrir Alþingiskosningarnar 2007 og 2009, en í fyrra var hámarksfjárhæðin 14 milljónir króna.
Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra Samfylkingarinnar


