Aðalfundur þakkar almannavörnum, björgunarsveitum og fleirum
Aðalfundur Kjördæmaráðs Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi haldinn á Hótel Heklu, á Skeiðum laugardaginn 17. apríl 2010 þakkar teymi almannavarna, lögreglu, björgunarsveita, fjölda sjálfboðaliða, sveitarstjórnum og fleiri aðilum sem hafa unnið ómetanlegt starf í þágu öryggis íbúa í kringum gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Þeirra góða starf hefur vakið öryggiskennd fólks sem annars býr við mikla óvissu. Heimilið er griðarstaður og bændur á þessu svæði eiga allt sitt undir. Traustvekjandi vinna allra þessara aðila gerir íbúum kleift að dvelja á sínum griðarstað í trausti þess að þeim verði gert viðvart þegar ógn steðjar að og aðstoð veitt í hvívetna eins og mannlegur máttur leyfir.
Aðalfundurinn sendir öllum íbúum á hamfarasvæðunum bestu kveðjur.

