Fréttir

Opinn umræðufundur um sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði

20.9.2005

Sunnudaginn 25. september n.k. kl.15:00 til 18:00 verður opinn umræðufundur um sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði, á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í húsnæði hreyfingarinnar að Hafnarstræti 98, Akureyri.

 

Kosningar um sameiningu sveitarfélaga verða 8. október nk. og því ekki seinna vænna að tala saman um möguleika, hættur, kosti og galla sameiningarhugmyndanna. Hverjar eru skoðanir VG félaga á sameiningu í Eyjafirði?

 

Kaffi og te á könnunni.

 

Svæðisfélag VG Akureyri og nágrenni

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica