Ný stjórn og ályktun VG á Vestfjörðum
Á aðalfundi VG Vestfjörðum, sem var haldinn í gær í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, var ný stjórn kjörin. Í henni sitja:
Guðný Hildur Magnúsdóttir formaður
Jóna Benediktsdóttir ritari
Ágústa Guðmundsdóttir gjaldkeri
Svava Rán Valgeirsdóttir meðstjórnandi
Gígja Tómasdóttir meðstjórnandi
Varastjórn:
Gunnar Sigurðsson
Stefán Björgvin Guðmundsson
Halldóra Játvarðardóttir
Á fundinn mættu Jón Bjarnason og Ásmundur Daði sögðu frá sínum helstu verkefnum í þingi og ráðuneyti og voru svo spurðir spjörunum úr.
Fundurinn samþykkti síðan eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur svæðisfélags Vinstri grænna á Vestfjörðum, haldinn á Ísafirði 11. apríl 2010, minnir ríkisstjórn Íslands á að enn er margt ógert til að tryggja það að íbúar Vestfjarða búi við sambærileg skilyrði og aðrir landsmenn hvað grunngerð samfélagsins varðar, úr því þarf að bæta.
Atvinnulíf þarf að efla með öllum skynsamlegum ráðum og mikilvægt er að frumvarp um strandveiðar nái fram að ganga hið alla fyrsta.
Fundurinn lýsir yfir stuðningi við ríkisstjórn Íslands í þeim erfiðu verkefnum sem hún stendur frammi fyrir um leið og hann minnir á að ekki má láta undan síga í baráttunni við sérhagsmunaöflin sem hafa vanist því að fá sitt fram á Íslandi.“


