Fréttir

Vinstri græn um allt land

11.4.2010

Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður nú fram í þriðja sinn til sveitastjórnarkosninga og hafa V-listarnir aldrei verið fleiri.

Nú þegar hafa verið samþykktir listar:

Á Akureyri þar sem Andrea Hjálsdóttir skipar efsta sætið

Í Árborg þar sem Þórdís Eygló Sigurðardóttir skipar efsta sætið

Í Borgarbyggð þar sem Ragnar Frank Kristjánsson skipar efsta sætið

Í Hafnarfirð þar sem Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir skipar efsta sætið

Á Hornafirði þar sem Steinarr Bjarni Guðmundsson skipar efsta sætið

Í Kópavogi þar sem Ólafur Þór Gunnarsson skipar efsta sætið

Í Mosfellsbæ þar sem Karl Tómasson skipar efsta sætið

Í Norður þingi þar sem Trausti Aðalsteinsson skipar efsta sætið

Í Reykjavík þar sem Sóley Tómasdóttir skipar efsta sætið

Ljóst er að V-listar verða líka boðnir fram á öðrum stöðum og má þar nefna:

Akranes þar sem Þröstur Þór Ólafsson hlaut umboð í fyrsta sæti í forvali

Grindavík þar sem Garðar Páll Vignisson er sitjandi bæjarfulltrúi og hyggur á endurnýjað umboð

Rangárþing eystra þar sem V-listi er í samstarfi við óháð og Guðmundur Ólafsson hlaut fyrsta sæti í forvali

Auk þess er áætlað V-lista framboð á fleiri stöðum og verður það kynnt á næstu vikum.

Vinstri græn eru í samstarfi um sameiginlegt framboð víða og má þar nefna Seltjarnarnes, Álftanes, Stykkishólm, Ísafjörð og Hveragerði.

 

Á fundi í Grindavík um helgina voru kosningarnar og næstu fjögur árin undirbúin og lögð drög að áherslum í komandi kosningum og þeirri vinnu sem framundan er á erfiðum tímum hjá sveitarfélögum jafnt sem ríki. Vinstri græn eiga brýnt erindi í sveitastjórnir þegar nauðsynlegt er að verja velferðarkerfið og taka framsýnar ákvarðanir í sátt við náttúru og mannlíf.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica