Fréttir

Ný stjórn VG á Akureyri

26.9.2005

Á aðalfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri og nágrenni þann 23. september var kosin ný stjórn fyrir félagið. Dýrleif Skjóldal var endurkjörin formaður og aðrir í stjórn eru Andrew Brooks, Elsa Guðmundsdóttir, Helga Eiðsdóttir, Jóhannes Árnason, Kristín Sigfúsdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Wolfgang Frosti Sahr. Alla mánudaga klukkan 20 eru haldnir fundir um bæjarmál og landsmálin í húsnæði VG í Hafnarstræti 98 á Akureyri.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica