Fréttir
Reykhólasveit orðin hluti af VG í Dölum
Á nýliðnum aðalfundi VG í Dölum í Tjarnarlundi var samþykkt breytingartillaga um að Reykhólasveit verði með og þetta heiti þá VG í Dölum og Reykhólasveit. Ný stjórn var kjörin en formaður er Halla Steinólfsdóttir, Sveinn Ragnarsson var kjörinn gjaldkeri, Unnsteinn Kristinn Hermannsson ritari og til vara voru kosin Kristján Garðarsson og Valgerður Lárusdóttir.

