Fundir borgarmálaráðs framundan
Á fundi stjórnar Borgarmálaráðs var ákveðið að birta dagskrá næstu funda ráðsins, októberfunda, þrátt fyrir að dagsetningar liggi enn ekki fyrir:
1. Heimsókn í Orkuveituna og á virkjunarstaði á Hellisheiði.
Markmiðið er kynnast starfsemi orkuveitunnar, sérstaklega á sviði orkuvinnslu. Orkuveitan er að reisa nýjar jarðhitavirkjanir á háhitasvæðum á Hellisheiði, meðal annars á grundvelli orkusölu til stóriðju og mun bráðlega hefja miklar boranir á svæðinu. Því er tímabært að
heimsækja Orkuveituna og kynnast því sem er á döfinni hjá þessu stærsta fyrirtæki borgarinnar.
2. Flugvallarmálið: opinn fundur um Reykjavíkurflugvöll. Fara eða vera - rökin með og á móti. Ef fara þá hvert? Og loks, er til 3ja leiðin?
Á fundinum verða haldin tvö eða þrjú stutt framsöguerindi þar sem þessi ólíku sjónarhorn verða viðruð.
F.h. Borgarmálaráðs
Ásta Þorleifsdóttir

