Stjórn VG andvíg einkaher
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs 19. mars 2010: Ályktun vegna umræðu um einkaflugher Stjórn Vinstri grænna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grænna og Vinstri grænna í Reykjavík þar sem því er hafnað að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi. Stjórnin telur óásættanlegt með öllu að hér fari fram hernaðarstarfsemi undir yfirvarpi atvinnusköpunar og skorar á ríkisstjórn VG og Samfylkingar að hafna slíku fortakslaust nú þegar.

