Ályktanir Kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis
Um málefni sveitarfélaganna og sameiningarkosningar
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, gagnrýnir ónógan og óvandaðan undirbúning ríkisvaldsins fyrir kosningar um sameiningu sveitarfélaga, sem fram eiga að fara 8. október næstkomandi. Engin varanleg úrlausn er enn í sjónmáli hvað snertir afkomu sveitarfélaganna. Þá telur fundurinn, að huga verði að því að heimila í lögum, að íbúar fyrrum sveitarfélags hafi möguleika á að kjósa um að endurheimta sjálfstæði sitt ef forsendur breytast í grundvallaratriðum frá því sem fyrir lá þegar kosningar um sameiningu fóru fram.
Efnahagsmálin í uppnámi
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, gagnrýnir harðlega ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Útflutnings- og samkeppnisgreinar búa við algjörlega óviðunandi rekstrarskilyrði, sem birtast þessa dagana m.a. í fjöldauppsögnum í fiskvinnslu, erfiðleikum ferðaþjónustunnar og flutningi starfa í iðnaði úr landi. Ljóst er að núverandi ástand bitnar ekki síst harkalega á landsbyggðinni. Verðbólga og þensla, svimandi háir vextir og ofurgengi krónunnar eru beinar afleiðingar af stóriðju- og skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Allt bendir til að kollsteypa sé framundan með gengishruni, verðbólgu og kjaraskerðingu ef ríkisstjórnin sér ekki að sér. Hverfa verður frá hugmyndum um frekari þensluhvetjandi stóriðjuframkvæmdir, en leggja þess í stað áherslu á fjölbreytta atvinnuuppbyggingu. Jafnframt ber að hætta við skattalækkanir og grípa til samstilltra aðgerða til að ná aftur jafnvægi í þjóðarbúskapnum.
Heilbrigðis- og menntamál á landsbyggðinni
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, leggur áherslu á, að mun meiri fjármunum verði varið til uppbyggingar og reksturs á sviði mennta- og heilbrigðismála á landsbyggðinni. Undirstöðustofnanir á þessum sviðum hér í kjördæminu, eins og Háskólinn á Akureyri, framhaldsskólarnir, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og heilbrigðisstofnanir Austurlands og Þingeyjarsýslna, hafa átt í meiri og minni rekstrarerfiðleikum undanfarin ár og vöxtur þeirra og frekari uppbygging hefur í sumum tilfellum stöðvast. Það samræmist illa góðærisræðuhöldum stjórnarflokkanna að á sama tíma skuli svo illa búið að ómissandi þjónustu út um landi nema tilgangurinn sé að ryðja einkavæðingu braut. Fundurinn hafnar öllum hugmyndum um einkavæðingu í heilbrigðis- og menntamálum og hvetur landsmenn til að standa vörð um ókeypis heilbrigðisþjónustu og menntun.
Stefnumótun í byggðamálum
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, samþykkir að beina þeim tilmælum til landsfundar flokksins, að mótaðar verði á næsta ári nýjar og framsæknar áherslur og heildstæð stefna flokksins í byggðamálum. Ljóst er að nýrrar ríkisstjórnar bíður mikið endurreisnarstarf á vettvangi byggðamála eftir langvarandi dáðleysi núverandi stjórnarflokka á því sviði, sem kostað hefur landsbyggðina mikla fólksfækkun og versnandi lífsskilyrði.
Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, hvetur aðildarfélög á svæðinu til að hefja þegar undirbúning að sveitarstjórnarkosningum og flokksmenn og stuðningsmenn til að gera sig gildandi á vettvangi sveitarstjórnarmálanna, allt eftir aðstæðum á hverjum stað. Markmiðið á að vera að sjónarmið okkar heyrist og hafi áhrif sem allra víðast, hvort heldur sem VG fer í framboð í eigin nafni eða verður í samstarfi við önnur stjórnmálaöfl sem fallast á að hafa róttæka félagshyggju og umhverfisvernd að leiðarljósi.
Landsvirkjun og samkeppni í grunnskólum
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, mótmælir harðlega þeim áformum Landsvirkjunar að efna til samkeppni meðal grunnskólanemenda varðandi orkumál og Kárahnjúkavirkjun. Það er forkastanlegt að Landsvirkjun skuli þröngva áróðri sínum með þessum hætti inn í starf grunnskólanna. Með þessari innrætingu væri Landsvirkjun að reyna að snúa börnum á sveif með hroðalegustu náttúruspjöllum og umdeildustu framkvæmdum Íslandssögunnar. Fundurinn hvetur skólastjórnendur, kennara, nemendur og fjölskyldur þeirra til að hafna þessari svokölluðu samkeppni algjörlega.
Orkuverð í dreifbýli
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, haldinn á Egilsstöðum 2. október 2005, krefst þess að stjórnvöld grípi þegar til aðgerða til að leiðrétta þá gífurlegu hækkun á orkuverði sem orðið hefur í dreifbýli í kjölfar markaðsvæðingar raforkukerfisins með nýjum orkulögum.

