Ályktun um örorkustyrk vegna reksturs bifreiða (bensínstyrk)
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs mótmælir harðlega þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar, að ráðast nú enn á ný gegn hreyfihömluðum með afnámi örorkustyrks vegna rekstur bifreiða, svokallaðs bensínstyrks.
Á meðan peningunum sem fengust fyrir Símann er ausið á báðar hendur og hamast er við að finna fleiri ?arðvænleg? fyrirtæki í eigu almennings til að afhenda auðmönnum, sem aldrei fá nóg, eru tekjur hóps hreyfihamlaðra skertar um umtalsverðar fjárhæðir. Hluta af því fé sem þannig fæst er úthlutað á hóp manna sem engar atvinnutekjur hefur og þannig reynt etja saman hópum fatlaðra. Stærstur hluti þeirra sem fá þennan bensínstyrk hafa atvinnu og því hvetja þessar aðgerðir ekki til aukinnar þátttöku fatlaðra í atvinnulífinu, en styrkurinn gerir fólki aðveldar fyrir að sækja vinnu.
Stjórn VG krefst þess að fallið verði frá þessum áformum og fundnar verði aðrar leiðir til að bæta kjör þeirra sem engar tekjur hafa en lífeyrisgreiðslur.

