Smugan á netinu á ný
Smugan.is hefur hafið göngu sína á ný en vefritið er umræðu og fréttavettvangur fyrir vinstra fólk og umhverfis og jafnréttissinna. Nýr ritstjóri Smugunnar er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Ásgeir H. Ingólfsson sér um menningarumfjöllun og Ingólfur V. Júlíusson um ljósmyndir. Fjöldi landsþekktra pistlahöfunda leggur vefritinu lið. Þráinn Bertelsson og Lilja Mósesdóttir eru pistlahöfundar dagsins, Þráinn fer yfir vikuna í dagbókarstíl eins og honum er einum lagið, Lilja vekur athygli á grunsemdum um að auðmenn noti fé úr eignarhaldsfélögum sem skiptastjórar hafa ekki enn sett í þrot til að fjármagna yfirtökur skuldsettra félaga. Þá er hin baneitraða steinsmuga á sínum stað.

