Sjö gefa kost á sér í forvali VG á Akranesi
Félagsfundur á Akranesi ákvað að nota póstkosningu við uppröðun á lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar og rennur framboðsfrestur út 26. febrúar. Allir félagar í VG sem skráðir eru til heimilis á Akranesi 26. febrúar næstkomandi fá sendan kjörseðil í pósti sem þeir svo senda aftur til kjörstjórnar skv. leiðbeiningum. Atkvæði þurfa að hafa borist fyrir 8. mars. Nánari upplýsingar um framkvæmd forvalsins og frambjóðendur má nálgast hér.
Þau sem gefa kost á sér eru:
|
Reynir Eyvindsson, rafmangsverkfræðingur, 1.-4. sæti |
|
Þröstur Þór Ólafsson, vélfræðingur, 1. -3. sæti |
|
Hjördís Garðarsdóttir, neyðarvörður, 2. sæti |
|
Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, nemi í guðfræði, 3.-6. sæti |
||
|
Guðrún Margrét Jónsdóttir, eðlisfræðingur, 4.-8. sæti |
||
|
Örn Arnarson, grunnskólakennari, 4.-12. sæti |
||
|
Samúel Þorsteinsson, kennari og vélvirki, 4.-12. sæti |
||


