Fréttir

Úrslit prófkjörs VGR

13.10.2005

Prófkjör VG í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 fór fram laugardaginn 1. október sl. Rúmlega 750 félagar í Reykjavíkurfélaginu voru á kjörskrá og voru þeim kynntir frambjóðendur með sérstöku kosningablaði, auk kynningarfunda.

396 greiddu atkvæði, þar af voru fjögur atkvæði ógild.

1.sæti Svandís Svavarsdóttir með 277 atkvæði.

2. sæti hlaut Árni Þór Sigurðsson með 167 atkvæði í 1. og 2. sæti.


Þriðja sætið kom í hlut Þorleifs Gunnlaugssonar, með 160 atkvæði í 1.-3. sæti.

Sóley hlaut 175 atkvæði í fjórða sæti.

Grímur Atlason varð fimmti með 239 atkvæði í 1.-5. sæti.

Sjötta sætið hlaut svo Ugla Egilsdóttir með 211 atkvæði.

Ásta Þorleifsdóttir, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Magnús Bergsson og Þorvaldur Þorvaldsson voru í sætum sjö til tíu (stafrófsröð).

Í kjölfarið mun kjörstjórn breytast í uppstillingarnefnd til að ganga frá þeim sætum sem eftir eru og skila frá sér fullbúnum lista til félagsfundar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica