Fréttir

Tilkynning frá félögum í VG á Fljótsdalshéraði

25.2.2010

Tilkynning frá félögum í VG á Fljótsdalshéraði sem taka þátt í vinnu Héraðslistans við að undirbúa komandi sveitarstjórnarkosningar 

Héraðslistinn er samtök félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði og mun bjóða fram við sveitastjórnarkosningarnar í maímánuði næstkomandi.  Á þessu kjörtímabili er Héraðslistinn í meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og hefur þrjá fulltrúa í bæjarstjórn.Málefnavinna Héraðslistans er í gerjun og nú er kallað eftir þátttöku íbúa sveitarfélagsins að þeirri vinnu.

Unnið er í eftirfarandi hópum:

  • Stjórnsýslan
  • Velferðarmál
  • Skipulagsmál
  • Atvinnumál

Málefnavinnan fer fram á vikulegum fundum Héraðslistans á þriðjudagskvöldum klukkan 20 í kaffistofu Barra að Valgerðarstöðum, norðan Fellabæjar (afleggjari hjá Herði).  Allt áhugafólk um félagshyggju og samfélagsþróun er velkomið.  Næsti fundur er þriðjudaginn 2. mars.

Ljóst er að mikil endurnýjun verður á framboðslista Héraðslistans og er því kallað eftir áhugasömum einstaklingum sem vilja bjóða fram krafta sína. 
Héraðslistinn mun leggja áherslu á jafnt hlutfall kynja á listanum, þá er mikilvægt að á listanum séu fulltrúar bæði dreifbýlis og þéttbýlis á Héraði. 
Þátttaka í málefnavinnu Héraðslistans og starfi hans, með framboði og/eða vilja til nefndarsetu, er einstakt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og þróun sveitarfélagsins á næsta kjörtímabili.

Hér með er skorað á félaga í VG á Héraði að láta skrá sig á póstlista Héraðslistans og taka þátt í málefnavinnu og öðrum undirbúningi fyrir komandi kosningar.

Nánari upplýsingar um starf Héraðslistans má finna á www.heradslistinn.is auk þess sem fólk er hvatt til að skrá sig áfésabókarsíðu ( facebook ) listans. Þá veitir stjórn Héraðslistans nánari upplýsingar um starfsemi hans.

Með von um jákvæðar viðtökur,

Árni Kristinsson, sími 825 1496

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica