Gunnar Sigurðsson dregur framboð sitt til baka við forval fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Kópavogi
Kjörstjórn vegna forvals fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Kópavogi 2010 hefur borist eftirfarandi tilkynning frá frambjóðandanum Gunnari Sigurðssyni: "Skjótt skipast veður í lofti en nú er svo komið að ég neyðist til að draga framboð mitt til baka. Ástæður þess liggja í því að fjölskyldan flytur búferlum úr landi næstu mánuði og því ljóst að ég geti í engan stað komið að bæjarmálum VG í Kópavogi, nema þá á rafrænan hátt. Mér þykir þetta afar miður og biðst innilegrar afsökunar á þessum óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér, en fjölskyldan hefur komist að því að ekki er unnt að sleppa þessu tækifæri sem búferlaflutningurinn kann að bjóða uppá. "


