Fréttir

Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum

23.2.2010

Aðalfundur VG í Vestmannaeyjum var haldinn mánudaginn 22. feb. Auk venjulegra aðalfundastarfa var rætt um starfið framundan og þá einkanlega um væntanlegar bæjarstjórnarkosningar  í maí n.k.  Mikill hugur er á því í Vestmannaeyjum að Vinstri græn verði áberandi  öflug í bæjarmálapólitík á komandi árum og er þegar hafinn undirbúningur þess.

Stjórn félagsins var þannig kosin:

Jóhanna Njálsdóttir formaður

Aldís Gunnarsdóttir gjaldkeri

Katrín Freysdóttir ritari

Þá voru á aðalfundinum kosnir fulltrúar félagsins á aðalfund kjördæmisráðs VG í suðurkjördæmi en sá fundur verður haldinn nk. laugardag.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica